Um fyrirtækið
Hugmyndin að Náttúrunni í ull spratt upp úr námskeiði hjá Impru 2007. Þar lærðu þátttakendur hvernig hugmynd getur þróast og orðið að raunverulegri atvinnusköpun. Mín hugmynd var að jurtalita íslenskt ullarband og prjóna og hanna vörur úr bandinu.
Síðan í maí 2007 hef ég svo verið að jurtalita og prjóna og hanna vörur. Engar tvær flíkur eru nákvæmlega eins. Nær ógerlegt er að ná fram sama litnum í nýrri litun en það gerir líka vörurnar sérstakari.
Jurtalitir flokkast undir liti sem við köllum oft jarðarliti, gula, brúna og græna í ótal tónum. Liturinn er eingöngu fenginn úr íslenskum jurtum og engin kemisk efni notuð. Framleiðslan er því náttúruvæn. Lítil hætta er á ofnæmi fyrir þá sem nota vörurnar þar sem engin aukaefni eru til staðar.
Ég vinn ein að þessu verkefni og sæki jurtirnar að lang mestu leyti í næsta nágrenni við heimili mitt hér á Laugarbakka.




