Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Um hönnuðinn

Pálína Fanney SkúladóttirÉg heiti Pálína Fanney Skúladóttir og bý á Laugarbakka í Miðfirði í Vestur Hún.

Ég er fædd og uppalin austur á Héraði. Í grunnskóla fékk ég mikla og góða kennslu í handavinnu sem varð góður grunnur fyrir mína sköpunarþörf og hannyrðaáhuga. Móðir mín kenndi mér einnig mikið.

Ég hef mikinn áhuga á villtum íslenskum jurtum en þessi tvö áhugamál sameinast algerlega í jurtalituninni. Ég hef sótt nokkur námskeið í ýmsu sem tengist textíl og alltaf haft eitthvað á prjónunum.

Ég er grunnskólakennari og organisti að mennt og kenni núna við Grunnskóla Húnaþings vestra og er organisti í Hvammstangakirkju og Melstaðarkirkju.


Nýjar vörur

Kragar

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta